Hönnun hjá vettvangi
Virðisaukandi og notendamiðuð hönnun
Notandinn í fyrsta sæti
Margverðlaunaðir hönnuðir okkar eru snillingar í hvers kyns viðmótshönnun þar sem notendur og þarfir þeirra eru ávallt í fyrsta sæti. Ánægja notenda, aðgengi að vörum og þjónustu og jákvæð heildarupplifun þeirra er okkar leiðarljós.
Aukið virði, meiri árangur
Við höfum ávallt viðskipta- og rekstrarleg sjónarmið samstarfsaðila okkar í forgrunni og leitum allra leiða til að þær lausnir sem við hönnum skili auknu virði. Það gerum við meðal annars með einföldun ferla, skilvirkari sjálfsafgreiðslu, minna álagi og nákvæmri miðlun upplýsinga.
Náið samstarf alla leið
Við hvetjum samstarfsaðilar okkar til taka fullan þátt í hönnunarferlinu. Við trúum á stuttar boðleiðir og stöðuga endurgjöf, sem tryggir að allir eru alltaf á sömu blaðsíðu. Náin samvinna hefur margsannað sig og skilað framúrskarandi lausnum.
Lestu nánar
Við leysum allar
hliðar hönnunar
Við hönnum allar gerðir stafrænna lausna, hvort sem um er að ræða upplýsingavefi, vefverslanir, þjónustuvefi, applausnir eða ársskýrslur. Í viðmótum okkar má finna fullkomið samspil aðgengis og fagurfræði þar sem þarfir og upplifun notenda er í fyrsta sæti.
Til að lágmarka áhættu og stytta þróunartíma nýrra lausna bjóðum við kröftuga hönnunarspretti. Þar greinum við þarfir og óskir notenda og viðskiptavina og hönnum í kjölfarið hágæða prótótýpu þar sem áþreifanleg tækifæri eru dregin fram og lausnir fundnar á áskorunum sem fyrirtæki kunna að standa frammi fyrir.
Til að einfalda rekstur og auðvelda viðhald á stafrænum lausnum er öflugt og yfirgripsmikið hönnunarkerfi nauðsynlegt. Slíkt kerfi inniheldur hönnunarstaðla og skilgreiningar á þeim viðmótseiningum sem hver lausn byggir á. Hönnunarkerfi er vegvísir til framtíðar hvað uppbyggingu og þróun varðar.
Hvort sem það er að hanna merki frá grunni, vinna að mörkun eða framlengja hana í stafrænu umhverfi þá leggjum við metnað okkar í að styrkja vörumerki samstarfsaðila okkar. Við leggjum okkur fram um að fanga kjarnann í vörumerkinu og hleypa nýju og spennandi lífi í ásýnd þína á stafrænum miðlum.
Í allri okkar hönnun ráða aðgengismál för og er okkur annt um að lausnir okkar taki mið af ólíkum þörfum og séu aðgengilegar öllum notendum. Í þeirri viðleitni notum við sérfhæfð tól, styðjumst við niðurstöður rannsókna, framkvæmum notendaprófanir og leitum eftir og fylgjum ráðum hagsmunaaðila.
Okkar nálgun
Komdu með
okkur í ferðalag
Frá byrjun til enda
Góðar lausnir kalla á náið samstarf þar sem gengið er saman í takt að skýru markmiði. Saman skilgreinum við lokaafurðina, brjótum verkið í hæfilega áfanga og kortleggjum vegferðina sem framundan er.
Stöðug þróun
Við vinnum stöðugt að því að þróa og slípa lausnir okkar til, dag eftir dag, útgáfu eftir útgáfu. Í umhverfi stöðugra tækninýjunga tryggjum við viðskiptavinum okkar hraða aðlögun og nauðsynlegar uppfærslur.
Skuldbinding
Góðar lausnir kalla á náið samstarf þar sem gengið er saman í takt að skýru markmiði. Saman skilgreinum við lokaafurðina, brjótum verkið í hæfilega áfanga og kortleggjum vegferðina sem framundan er.
Lestu nánar
Áhugavert efni
tengt hönnun
Hönnunarsprettir (e. design sprints), eru þrautreynd aðferðafræði sem skilar ótvíræðum árangri. Með því að safna saman lykilfólki í stutta og markvissa vinnustofu er hægt að stytta þróunartíma, lágmarka áhættu og tryggja að lausnir mæti raunverulegum þörfum notenda. Ánægðir viðskiptavinir eru meðal annars Domino’s, Lyfja, KSÍ, Netgíró og Lífeyrissjóður verzlunarmanna.
Vönduð útlitsmörkun fyrir stafræna miðla skapar fagurfræðilega heild og styður við notendaupplifun, styrkir ímynd vörumerkis og tryggir samræmi milli allra snertiflata. Þegar engin útlitsmörkun er til staðar þarf ný hönnun að byggja á gildum, markaði og notendum - og sú vinna krefst náins og góðs samstarfs.
Það sem þau hafa sagt
Ég mæli hiklaust með hönnunarsprettinum hjá Vettvangi. Vinnan er faglega unnin frá A-Ö og það er vel hlustað á allar ábendingar og athugasemdir á meðan á ferlinu stendur. Hönnunarspretturinn auðveldar áframhaldandi vinnu og flýtir fyrir þessari grunnvinnu sem þarf að eiga sér stað áður en stofnanir láta forrita nýja heimasíðu.
Hjá Vettvangi starfar hæfileikaríkt fólk með mikinn metnað sem einstaklega gott er að vinna með. Við hófum samstarf snemma árs 2017 og hefur þróun vefsins og stafrænna lausna aldrei verið hraðari og betri. Teymið okkar hjá Vettvangi hefur reynst okkur mjög vel í þessari vegferð. Í sameiningu höfum við náð að yfirstíga tæknilegar áskoranir og þróað lausnir sem styðja við okkar viðskiptalegu markmið.
Þekking og hæfni starfsmanna Vettvangs á sviði veflausna og hönnunar hefur skilað Epli nýrri heimasíðu sem mikil sátt ríkir með. Samskipti og þolinmæði þeirra er til fyrirmyndar sem og einlægur vilji til að að vefsíðan sem sem best á alla vegu. Góðar ráðleggingar, fagleg vinnubrögð og gott viðmót til viðskiptavinarins er það sem stendur upp úr í þessari vinnu.
Fjölmargar áskoranir og álitamál hafa komið upp í tengslum við þróun þekkingarvefs heilsuveru. Við komum aldrei að tómum kofanum hjá Vettvangi, þar á bæ hafa menn lausnamiðaða nálgun, endalausa þolinmæði og góðar tillögur sem margar hverjar hafa slegið rækilega í gegn hjá notendum vefsins.
Ég get ekki mælt meira með þjónustu Vettvangs en teymið þeirra er skipað frábærum aðilum sem reyndust okkur hjá Heimum vel þegar við vorum í endurmörkunarferli og vorum að búa til nýjan vef sem var hannaður frá grunni hjá þeim. Öll samskipti eru hröð og góð og alltaf er fyrirspurnum og þjónustubeiðnum svarað með jákvæðni og þjónustulund.
„Ég mæli 100% með Klaviyo. Kerfið hefur allt upp á að bjóða hvað varðar sjálfvirkni í markaðssamskiptum og er bæði þægilegt í notkun og skýrt í viðmóti. Samstarfið við Vettvang hefur gengið mjög vel og við hlökkum til að ná enn frekari árangri saman.“
Á meðal þess sem við vildum að yrðu leiðarljósin í samstarfi við Vettvang var náið og stöðugt samstarf, hreinskiptin og heiðarleg samskipti, greiður og beinn aðgangur að hönnuðum og forriturum, einfalt og aðgengilegt vefumsjónarkerfi og að uppsetning vefsins yrði þannig að við hefðum mikla stjórn á honum. Þetta rættist allt. Vettvangur hefur reynst frábær samstarfaðili.
Vettvangur sá um nýju heimasíðuna okkar og var samstarfið einstaklega gott. Þau vita hvað þau eru að gera og ganga hreint til verks. Ég kann sérstaklega að meta metnaðinn sem þau hafa fyrir hönd viðskiptavina sinna og að hugmyndir okkar séu ekki einfaldlega framkvæmdar heldur leggur starfsfólk Vettvangs sig fram um að bæta þær.
Við komumst fljótt að því að hjá Vettvangi starfar einstaklega lausnamiðað fólk sem hefur frá upphafi nálgast hugmyndir okkar af opnum hug en jafnframt með faglegri og heiðarlegri ráðgjöf, stílhreinni hönnun og vönduðum vinnubrögðum.
Við hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna getum hiklaust mælt með Vettvangi. Vinnunni með þeim fylgir jákvæður og spennandi kraftur og frumkvæði í að finna góðar lausnir sem passa okkur. Við kunnum vel að meta nálægðina við þá sem vinna að hönnun og forritun sem einfaldar allt og sparar tíma. Við höfum verið mjög ánægð með allt upplýsingaflæði, skipulag og áreiðanleika.
Vettvangur aðstoðaði okkur við heildarendurskoðun og útskiptingu á innri og ytri vef, sem gekk framar vonum. Allar áætlanir stóðust fyllilega, samskipti voru til fyrirmyndar og öll verkefni og beiðnir voru afgreiddar á mettíma. Að auki er Umbraco vefumsjónarkerfið öflugt og einfalt í notkun, þannig að við erum afar sátt með útkomuna.
Hönnunarspretturinn með Vettvangi gekk gríðarlega vel, góð samskipti og hröð vinnubrögð einkenndi þeirra starf. Þar að auki var vefurinn sem þau smíðuðu mjög vel heppnaður. Ég mæli hiklaust með þeim sem samstarfsaðila í litlum sem stórum verkefnum.
Vettvangur sýndi framúrskarandi skilning á þörfum okkar sem tryggði að nýja vefsíðan okkar, npi.int, samræmdist fullkomlega sýn okkar og þörfum. Samskiptin voru til fyrirmyndar í gegnum allt ferlið og fagmennskan skein í gegn. Mælum eindregið með þeim og hlökkum til árfamhaldandi samstarfs.
Við vissum frá upphafi að það þýddi ekkert að bjóða okkur staðlaða verslunarlausn. Við erum með viðskiptavini með mjög ólíkar þarfir og við vildum hafa þann kost að geta þróað lausnina áfram að okkar aðstæðum, en ekki vera föst í einhverju boxi.
Fyrir okkur var mikilvægt að verkáætlun virtist raunhæf og traustvekjandi og að samræmi væri milli kostnaðar og þess sem fylgdi með í pakkanum - hraði síðu, sveigjanlegt vefumsjónarkerfi og hýsing voru lykilatriði fyrir okkur. Við vorum hæstánægð með samstarfið og lokaútkomuna á vefnum.
Þjónusta