Fara á efnissvæði
Vettvangur

Samstarfsaðilar

Distica

Skoða verkefni

distica.is

Hlutverk okkar

  • Viðmótshönnun
  • Vefþróun
  • Vefverslun
  • Mínar síður
  • API samþætting
  • Hýsing og rekstur

Nýr vefur Distica styrkir ásýnd fyrirtækisins sem leiðandi samstarfsaðila á sviði innflutnings, vörustýringar og dreifingar lyfja og annarra heilbrigðisvara. Distica er dótturfyrirtæki Veritas sem hefur starfað náið með Vettvangi undanfarin ár að þróun stafrænna lausna. Lausnir Veritas eru allar keyrðar í sama vefumsjónarkerfinu sem einfaldar rekstur og eykur hagræði.

Verkefni1 Distica

Mörg kerfi vinna sem eitt

Distica dreifir til 4 þúsund viðskiptavina, meðal annars apóteka, heilbrigðisstofnana, rannsóknastofa, tannlækna og dýralækna. Öflug dreifikerfi tengja saman birgja, vöruhús og viðskiptavini í eina samfellda keðju. Öllu máli skiptir að tengingar slíkra kerfa við þjónustuvefalausnir séu áreiðanlegar, öruggar og bjóði hnökralausa upplifun.

Verkefni1 Disticavideo (1)

Hagræði og stórbætt þjónusta

Þjónustuvefur og B2B verslunarlausn Distica er liðir í umfangsmikilli stafrænni vegferð Veritas samstæðunnar, sem snýr meðal annars að því að samræma og stafvæða kerfi sem og þjónustuleiðir við viðskiptavini. Þessar lausnir hafa aukið hagræði mikið með notendavænni og skjótri sjálfsafgreiðslu pantana og umsýslu notendaupplýsinga.

Verkefni2 Distica