Fara á efnissvæði
Vettvangur

Samstarfsaðilar

Kosmos

Skoða verkefni

kosmos.is

Hlutverk okkar

  • Viðmótshönnun
  • Appþróun
  • Vefþróun
  • Hýsing og rekstur
  • API samþætting

Kosmos er nýtt vörumerki á fjarskiptamarkaði sem tekur sig hæfilega alvarlega, enda eiga fjarskipti ekki að vera nein geimvísindi - en eru það ótrúlega oft. Í samstarfi við Vettvang og Apparatus fékk frumleg hugmynd farveg í kosmískum vef og appi, þar sem lykilorðið er gagnsæ verðlagning, einfalt þjónustuframboð og framúrskarandi notendaupplifun.

Image 5

Gervigreindin nýtt í hverju skrefi

Það sem gerir verkefnið með Kosmos sérstakt er að gervigreindin fléttast inn á öllum stigum, ekki aðeins í hugmynda- og hönnunarferlinu, heldur einnig í kjarna þjónustunnar sjálfrar, þar sem sjálfvirkni gerir Kosmos kleift að bjóða óvenju hagstæð kjör.

AI erindrekinn (e. agent) getur framkvæmd allt sem fítusar apps og vefs bjóða og er því orðinn í raun annað þjónustuviðmót sem notendur geta nýtt í öllum samskiptum við Kosmos og notkun þjónustunnar, til viðbótar við vefinn og appið.

Kosmos 2

Kosmísk bylting á neytendamarkaði?

Kosmos hefur heldur betur komið með ferska vinda inn á fjarskiptamarkaðinn, en lausnin markar líka ákveðin tímamót í hönnun og þróun rafrænnar þjónustu á neytendamarkaði, þar sem gervigreind er ekki aðeins nýtt í misgagnlegu netspjalli, heldur virkar sem raunverulegur þjónustufulltrúi sem klárar málin fyrir notandann alla leið.

Kosmos 3