Þínir ferðafélagar
Náið samstarf
frá fyrsta degi
Heildstæð nálgun í þróun
Við hjálpum fyrirtækjum og stofnunum að ná árangri á stafrænni vegferð. Stafrænar lausnir hafa áhrif á flest svið rekstrar. Heildstæð þjónusta okkar spannar allt frá stefnumótun og hönnun til þróunar og innviðareksturs sem styður við framtíðarþróun.
Árangurinn er leiðarljósið
Fallega hannaður vefur og öflug tækni er ekki markmiðið sjálft heldur leið að því. Það er okkur mikið metnaðarmál að þú náir raunverulegum árangri með lausnir sem við smíðum saman. Við leggjum okkur því fram um að skilja hvernig árangur lítur út fyrir þér.
Náið samstarf alla leið
Smíði á nýrri veflausn er alltaf náið samstarfsverkefni, frá fyrsta fundi og út líftíma lausnar. Við trúum á stuttar boðleiðir og stöðuga endurgjöf, sem tryggir að allir eru alltaf á sömu blaðsíðu. Náin samvinna hefur margsannað sig og skilað framúrskarandi lausnum.
Okkar nálgun
Komdu með
okkur í ferðalag
Frá byrjun til enda
Góðar lausnir kalla á náið samstarf þar sem gengið er saman í takt að skýru markmiði. Saman skilgreinum við lokaafurðina, brjótum verkið í hæfilega áfanga og kortleggjum vegferðina sem framundan er.
Stöðug þróun
Við vinnum stöðugt að því að þróa og slípa lausnir okkar til, dag eftir dag, útgáfu eftir útgáfu. Í umhverfi stöðugra tækninýjunga tryggjum við viðskiptavinum okkar hraða aðlögun og nauðsynlegar uppfærslur.
Til lengri tíma
Við kunnum að vinna hratt. En það þarf líka að hugsa til lengri tíma. Árangur þinn og velgengni til lengri tíma er okkar keppikefli. Þegar þér gengur vel, gengur okkur vel.
Árangur
Við erum árangursdrifinn og vinnum öll verk með hagsmuni hvers verkefnis í huga. Við viljum að allir sem koma að verkefninu sjái draum sinna verða að veruleika.
Dæmi um frábærar lausnir
Lestu nánar
Áhugavert efni
tengt vefþróun
Hönnunarsprettir & vinnustofur
Hönnunarsprettir (e. design sprints), eru þrautreynd aðferðafræði sem skilar ótvíræðum árangri. Með því að safna saman lykilfólki í stutta og markvissa vinnustofu er hægt að stytta þróunartíma, lágmarka áhættu og tryggja að lausnir mæti raunverulegum þörfum notenda. Ánægðir viðskiptavinir eru meðal annars Domino’s, Lyfja, KSÍ, Netgíró og Lífeyrissjóður verzlunarmanna.
Umbraco CMS: Frjáls og opin hugbúnaður
Umbraco er opið (e. open-source) vefumsjónarkerfi sem gerir mögulegt að smíða vefi, öpp eða aðrar stafrænar lausnir eftir þörfum hverju sinni. Umbraco er ókeypis til notkunar hverjum sem er og án leyfisgjalda. Með „headless“ nálgun geturðu stýrt efni þínu miðlægt. Þannig geturðu til dæmis uppfært upplýsingar og efni miðlægt fyrir app, vef og vefverslun úr sama vefumsjónartólinu.
B2B sérhæfing
Vettvangur hefur á undanförnum árum byggt upp mikla reynslu og sérhæfingu í þróun stafrænna lausna fyrir fyrirtæki í B2B umhverfi. Krafan á fyrirtækjamarkaði í dag, eins og á neytendamarkaði, er að viðskiptavinir njóti framúrskarandi notendaupplifunar í vefverslunum og þjónustusvæðum birgja sinna. Öflugur vefur og hnökralaus samþætting við innri kerfi veitir ekki samkeppnisforskot í dag - það er forsenda þess að vera með í leiknum.
Það sem samstarfsaðilar okkar segja
Við komumst fljótt að því að hjá Vettvangi starfar einstaklega lausnamiðað fólk sem hefur frá upphafi nálgast hugmyndir okkar af opnum hug en jafnframt með faglegri og heiðarlegri ráðgjöf, stílhreinni hönnun og vönduðum vinnubrögðum.
Við hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna getum hiklaust mælt með Vettvangi. Vinnunni með þeim fylgir jákvæður og spennandi kraftur og frumkvæði í að finna góðar lausnir sem passa okkur. Við kunnum vel að meta nálægðina við þá sem vinna að hönnun og forritun sem einfaldar allt og sparar tíma. Við höfum verið mjög ánægð með allt upplýsingaflæði, skipulag og áreiðanleika.
Ég get ekki mælt meira með þjónustu Vettvangs en teymið þeirra er skipað frábærum aðilum sem reyndust okkur hjá Heimum vel þegar við vorum í endurmörkunarferli og vorum að búa til nýjan vef sem var hannaður frá grunni hjá þeim. Öll samskipti eru hröð og góð og alltaf er fyrirspurnum og þjónustubeiðnum svarað með jákvæðni og þjónustulund.
Hjá Vettvangi starfar hæfileikaríkt fólk með mikinn metnað sem einstaklega gott er að vinna með. Við hófum samstarf snemma árs 2017 og hefur þróun vefsins og stafrænna lausna aldrei verið hraðari og betri. Teymið okkar hjá Vettvangi hefur reynst okkur mjög vel í þessari vegferð. Í sameiningu höfum við náð að yfirstíga tæknilegar áskoranir og þróað lausnir sem styðja við okkar viðskiptalegu markmið.
Hönnunarspretturinn með Vettvangi gekk gríðarlega vel, góð samskipti og hröð vinnubrögð einkenndi þeirra starf. Þar að auki var vefurinn sem þau smíðuðu mjög vel heppnaður. Ég mæli hiklaust með þeim sem samstarfsaðila í litlum sem stórum verkefnum.
Á meðal þess sem við vildum að yrðu leiðarljósin í samstarfi við Vettvang var náið og stöðugt samstarf, hreinskiptin og heiðarleg samskipti, greiður og beinn aðgangur að hönnuðum og forriturum, einfalt og aðgengilegt vefumsjónarkerfi og að uppsetning vefsins yrði þannig að við hefðum mikla stjórn á honum. Þetta rættist allt. Vettvangur hefur reynst frábær samstarfaðili.
Þjónusta