Þróað af öryggi með Azure og DevOps

Vinnsla í Azure skýinu minnkað kostnað og veitir fyrirtækjum þann sveigjanleika sem þau þurfa til að geta hámarkað stafræna möguleika sína.

Garðar Þorsteinsson

Garðar Þorsteinsson

Tæknistjóri Vettvangs

gardar@vettvangur.is

Af hverju Azure?

Fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum nýta sér skýjalausnir Azure.

Af hverju? Því skýið auðveldar fyrirtækjum að ná forskoti á stafrænum tímum. Vinnsla í Azure skýinu minnkar kostnað og veitir fyrirtækjum þann sveigjanleika sem þau þurfa til að geta hámarkað stafræna möguleika sína.

Styrkar stoðir

Ef þú vilt ekki verða skilinn eftir verður stefna þín upplýsingatækni að vera í samræmi við viðskiptastefnuna. Það þýðir að þú þarft kerfi sem eru nógu öflug fyrir vinnuálag dagsins í dag og nógu sveigjanleg fyrir vinnuálag framtíðarinnar.

Azure gæti verið lausnin fyrir þig.

  1. Sjálfvirk skölun

    Öll fyrirtæki upplifa að það er mismikil umferð um veflausnir þeirra. Azure getur skalað vefþjóninn þinn sjálfvirkt í samræmi við sveiflur svo álag skapi ekki vandamál og vefsvæðið fari niður.

    Aðeins er greitt fyrir nýttar mínútur þannig að þegar hægist um þá greiðirðu ekki fyrir eitthvað sem þú ert ekki að nota.

    Nokkuð gott, ekki satt?

  2. Útgáfustjórn

    Prófaðu útgáfurnar þínar í prófunarumhverfi. Azure kemur með skilvirku umhverfi til að stýra flæði breytinga milli þróunarsvæða og raunvefs.

    Þú getur framkvæmt allar þær prófanir sem þú vilt og hindrað þannig að notendur lendi í villum eða göllum sem geta valdið neikvæðri upplifun.

  3. Hraði, hraði, hraði

    Við lifum á stafrænni öld og allir vilja það besta - eins fljótt og auðið er.

    Azure hefur gríðarstórt efnisdreifingarkerfi svo það hefur bolmagn til að draga úr hleðslutíma, spara bandvídd og auka viðbragðsflýti sem þýðir að allir notendur þínir fá sömu upplifun, hvar sem þeir eru staddir í heiminum.

  4. Uppitími

    Hin mikla hnattræna dreifing á þjónustum Azure þýðir að þeir geta boðið uppitíma sem fáir geta keppt við. Azure býður samninga til viðskiptavina sinna um 99,95% uppitíma.

    Einnig býður Azure upp á að hægt sé að keyra út nýjar uppfærslur án þess að vefurinn verði fyrir nokkrum niðritíma.

  5. Microsoft öryggi

    Microsoft ábyrgist að öll gögn sem geymd eru í Azure skýinu njóti hámarks öryggis og verndar. 

    Þrepaskipt vörn, fjölmargar gæðavottanir, netöryggisstýringar og aðferðir til að berjast gegn netvá hjá Microsoft Azure tryggja hærra öryggisstig í skýjaumhverfinu.

  6. Gagnaöryggi - sofðu betur

    Í mörgum tilfellum er það vefur fyrirtækisins sem skapar flest sölutækifæri, veitir viðskiptavinum upplýsingar, tekur við pöntunum í gegnum vefverslun og margt fleira.

    Hvað myndi gerast ef vefurinn hyrfi? Azure gerir þér kleift að taka afrit af vefsvæðinu þínu og endurgera það þannig að þú getur farið í eldri útgáfu af því ef þú þarft á einfaldan máta.

Azure + DevOps = himnesk blanda

  1. Þróun

    Kóðaðu hraðar og betur með Visual Studio og Visual Studio Code. Notaðu sjálfvirkar prófanir og samfellda samþættingu í skýið með Azure ferlum.

    Nýttu sjálfvirk vinnuflæði, allt frá hugmynd yfir í raunvef með GitHub Actions. Það er meira segja rúm fyrir Jenkins vinnuflæði í Azure.

  2. Afhending

    Settu upp verkefnaferla í kringum afhendingu hugbúnaðar, hægt er að setja upp sjálfvirka ferla sem gera prófanir og setja upp umhverfi.

    Það flýtir fyrir og kemur í veg fyrir villur í afhendingu. Azure býður upp á sitt eigið afhendingartól, Azure Pipelines, og stuðning fyrir Jenkins og Spinnaker.

  3. Rekstur

    Viðmót Azure hjálpar þér að sjá raunálag á vefnum hverju sinni og þróun álags yfir lengri tíma. Þú getur komið á fullu eftirliti sem sendir viðvaranir í rauntíma ef vandamál koma upp.

    Upplýsingar úr leiðarbókum (e. logs) og mælingum eru alltaf aðgengilegar og rekjanleiki vandamála því tryggur. 

DevOps ferlarnir

Vettvangur hefur í sínum röðum reynslumiklum sérfræðingum í uppsetningu DevOps ferla með Azure en með DevOps ferlum getum við gert hvern hluta útgáfuferlisins sjálfvirkt, frá kóða og upp í skýið með samfelldri samþættingu (CI) eða afhendingu (CD). 

Með því að taka inn DevOps ferla og tækni fá teymi betri verkfæri og möguleika til að mæta kröfum notenda og ná settum viðskiptalegum markmiðum hraðar.

Þannig sköpum við umhverfi til framtíðar, þar sem sífelldar endurbætur geta átt sér stað.

Elmar Gunnarsson

Viðskipti og ráðgjöf

Viltu kíkja í spjall?

Orð eru til alls fyrst. Kíktu til okkar í heimsókn og segðu okkur þína sögu. Við tökum vel á móti þér, frítt og skuldbindingalaust.

Sláðu á þráðinn

415 0018

Eða skelltu á mig pósti

Fyrirtaks fólk í fyrirtaks fyrirtæki

Vettvangurinn er skipaður einvala liði fólks og furðufugla, sem er gaman og ánægjulegt að vinna með.

  • Framúrskarandi fyrirtæki 2022-2023
  • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2021-2023
  • Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2023
  • Velgjörðafyrirtækja SOS Barnaþorpa
  • Fyrirtækja ársins 2020

Viðskiptavinur