Domino's er stafrænn leiðtogi - verkefnasaga

Vissir þú að Domino's er eitt tæknivæddasta fyrirtæki landsins? Hér er sögð verkefnasaga Vettvangs með Domino´s, sem óhætt er að segja að hafa verið sannfærandi sigurganga síðustu ár. Mikið hefur áunnist, en þróunin er þrotlaus og heldur áfram í takt við nýja tækni og kröfur neytenda. 

Hans Júlíus Þórðarson

Hans Júlíus Þórðarson

Markaðsmál og efnisþjónusta

julli@vettvangur.is

Öruggari og hraðari vefur Domino's

Með nýtingu stafrænnar tækni til fulls hefur Domino’s náð árangri á netinu sem fáir geta leyft sér að dreyma um. Fyrirtækið hefur náð undraverðum árangri í sjálfvirknivæðingu viðskiptaferla sem leysa síendurtekin og tímafrek verkefni. 

Umbraco: Stöðugleiki, öryggi og endalausir þróunarmöguleikar

Vefur Domino’s var færður í funheitan Umbraco-ofn Vettvangs snemma árs 2017. Umbraco uppfyllir kröfur Domino’s um stöðugleika, öryggi og samþættingarhæfni en síðast en ekki síst er kerfið takmarkalaust þegar kemur að frekari þróun.

Lestu allt um Umbraco hér.

Viðmótið snurfusað og bætt

Þegar við hófum störf var fyrir hendi hönnun og flæði sem virkaði að mörgu leyti vel. Grunnmarkmið viðmótsuppfærslu Domino’s var því fyrst og fremst að bæta og uppfæra fremur en að kollvarpa. 

Heildarútlitið var snurfusað og fínpússað, pöntunarferlið var stórbætt og virkni bætt við sem léttir líf notenda.

Við lögðum kapp á að vefurinn virkaði vel fyrir flestalla notendur, en vefur og virkni er í samræmi við ráðleggingar W3C (World Wide Consortium) um aðgengilega vefi.

Íslendingar elska Domino's

Viðskiptavinir Domino’s eru fyrir löngu þaulvanir að panta sínar pizzur í gegnum vefinn og appið. Yfir 77% af pöntunum fara fram í gegnum stafræna miðla - árið 2018 fóru yfir 350 þúsund pantanir þar í gegn.

Ertu með vesen? Það má - og er ekkert mál

Það hefur aldrei verið auðveldara að hanna sína eigin pizzu, eða breyta pizzu af matseðli. Ekki láta ramma þig í einhver box, tjáðu persónuleika þinn í gegnum pizzuna.

Helmingaskipti

Getið þið aldrei verið sammála? Þeir eru fleiri, en Domino's sér um sína. Þið veljið bara á hvorn sinn helminginn. Ekkert mál.

Fjölgun netgreiðslna

Eitt af stóru áherslumálum Domino's var að fjölga viðskiptavinum sem greiða á vefnum. Við tókum snúning eftir snúning og árangurinn er framúrskarandi, þótt við segjum sjálf frá. 

Velta um vefinn í gegnum greiðslukort og farsímagreiðslur jókst um 80% á milli ára 2018 og 2019 og hefur aðeins vaxið síðan.

Áframhaldandi vöxtur í stafrænni sölu

Góður og öflugur vefur er lykilatriði fyrir fyrirtæki eins og Domino‘s og hefur verið ein helsta ástæða fyrir vexti fyrirtækisins síðustu ár. Tekjur af sölu í gegnum vefinn hefur haldið áfram að aukast og er svo komið að ríflega 77% tekna Domino‘s koma í gegnum stafræna sölu, vef og app.

Meiri virkni og sterkari viðbrögð

Eftir að nýtt viðmót fór í loftið hefur virkjunarhlutfall (e. conversion rate) aukist til muna og er í dag um 41% fyrir borð- og fartölvur, og um 22% í gegnum síma.

Tæknin

Viðmótið er smíðað í React og er svokallað vefapp (e. SPA, single page application). Það gerum við til að tryggja hámarksafkastagetu og óaðfinnanlega upplifun notenda en að því sögðu þá getur pizzupöntun verið furðu margslungin. 

Margar samsetningar eru skilyrtar öðrum þáttum svo sem heimsendingu, matseðli, botnum o.s.frv., en vandað viðmótið hjálpar notandanum að komast leiðar sinnar.

Flókið verður einfalt

Það getur verið flókið að panta pizzu þegar margir valmöguleikar og skilyrði eru í boði. Verðlaunaviðmót Domino’s einfaldar það sem flókið er þannig að allir finna sitt.

Samþætting við önnur kerfi

Flæði gagna milli vefs, afgreiðslukerfa og annarra kerfa er mikilvægasti hluti hverrar pöntunar en flæðið er með öllu sjálfvirkt.  Pöntunin þín fer til bakarans, sem tekur brosandi á móti henni, á örfáum millisekúndum.

Prófanir og öryggi

Lausnin var prófuð í bak og fyrir til að tryggja hnökralausa upplifun notenda. Álagsprófanir gáfu góða raun og ræður vefurinn við þúsundir samtímanotenda (enda veitir ekki af í megaviku). Að endingu var öryggi vefsins prófað og eflt enn frekar í samstarfi við sérfræðinga á sviði netöryggis.

Hamskipti eftir þörfum

Viðmót Domino’s vefsins getur snarskipt um ham og útlit eftir þörfum. Domino’s stundar gríðaröflugt markaðsstarf og dælir út mörgum herferðum sem taka á sig ólíkar myndir. Vefurinn fylgir að sjálfsögðu með.

Hamskipti í herferðum

Herferðir taka á sig ólíkar myndir og vefurinn fylgir að sjálfsögðu með.

Mitt Domino´s

Með „Mínu Domino’s“ er einfaldara og fljótlegra að panta pizzu. Upplýsingar viðskiptavina sem snúa aftur eru forútfylltar í greiðsluferlinu, vefurinn man hvar var pantað og stingur upp á síðustu afgreiðslustöðum sjálfkrafa. 

Stórnotendur geta vistað sínar pantanir og endurtekið þær með einum músasmelli. Lífið er ljúft, ekki satt?

Stöðug þróun

Í góðu samstarfi við Domino’s höfum við rætt og rýnt lausnirnar í þaula og kynnt nýjungar og betrumbætur jafnt og þétt. Vegferðin heldur áfram. Hér eru nokkrar viðbætur sem unnið hefur verið að.

  1. Viðbótarsala

    Loksins, loksins. Vefurinn hættir aldrei að hjálpa þér. 

    Nú er næstum því útilokað að gleyma hvítlauksolíunni, kókinu eða brauðstöngum

  2. Nýjar greiðsluleiðir

    Síminn Pay, Aur og Kass eru dæmi um greiðslumöguleika sem Domino’s býður upp á til að svara kalli ört stækkandi hóps viðskiptavina.

  3. Ofnæmi?

    Engar áhyggjur. Öllum matseðilspizzum fylgir nú sjálfvirk upplistun á ofnæmisvöldum og geta viðskiptavinir því andað rólega.

  4. Nýir markaðir

    Nú geta ferðamenn og aðrir vinir Domino’s með útlensk símanúmer loksins pantað ljúffengar flatbökur og fengið SMS í gegnum vefinn.

Samstarfið við Vettvang hefur verið gott og árangursríkt. Hjá Vettvangi starfar hæfileikaríkt fólk með mikinn metnað sem einstaklega gott er að vinna með.  Við hófum samstarf snemma árs 2017 og hefur þróun vefsins og stafrænna lausna aldrei verið hraðari og betri. Við hjá Domino´s viljum bjóða viðskiptavinum okkar upp á eins góða þjónustu og hægt er og spila þar stafrænar lausnir lykilhlutverk. Teymið okkar hjá Vettvangi hefur reynst okkur mjög vel í þessari vegferð. Í sameiningu höfum við náð að yfirstíga tæknilegar áskoranir og þróað lausnir sem styðja við okkar viðskiptalegu markmið.

Egill Þorsteinsson

Head of Digital hjá Domino's á Íslandi.

Elmar Gunnarsson

Viðskipti og ráðgjöf

Viltu kíkja í spjall?

Orð eru til alls fyrst. Kíktu til okkar í heimsókn og segðu okkur þína sögu. Við tökum vel á móti þér, frítt og skuldbindingalaust.

Sláðu á þráðinn

415 0018

Eða skelltu á mig pósti

Fyrirtaks fólk í fyrirtaks fyrirtæki

Vettvangurinn er skipaður einvala liði fólks og furðufugla, sem er gaman og ánægjulegt að vinna með.

  • Framúrskarandi fyrirtæki 2022-2023
  • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2021-2023
  • Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2023
  • Velgjörðafyrirtækja SOS Barnaþorpa
  • Fyrirtækja ársins 2020

Viðskiptavinur