Fara á efnissvæði
Vettvangur

Markpóstur deyr um það bil sjö sinnum á ári ef marka má umfjöllun spekinga. Á einhvern dularfullan hátt heldur hann samt áfram að skila tekjum sem aldrei fyrr - sérstaklega þegar hann er keyrður áfram af gögnum, sjálfvirkni og gervigreind.

Fyrirtæki sem nýta markvisst háþróuð tól eins og Klaviyo uppskera meiri hollustu viðskiptavina og auknar tekjur. 

Frá magnpósti til persónusniðinna samskipta

Gamla aðferðin - einn póstur á allan póstlistann - er löngu dauð. Hún gengur ekki í dag.  Til að ná í gegn þarf að nálgast hvern viðtakanda út frá hans þörfum og áhuga.

Með réttum tólum og uppsetningu er í dag hægt að senda persónusniðna pósta til hvers viðtakanda, af réttu tilefni og á hárréttum tíma. Þetta skapar traust og virkjar viðbrögð sem ekki er hægt að ná með Facebook eða Instagram auglýsingum.

Skilvirk herferð byggir á gagnasöfnun, markhópagreiningu og stöðugri prófun á efni, tímasetningu sendinga og tóni í skilaboðum.

Þannig verður markpósturinn persónuleg þjónusta frekar en truflun. Viðtakandinn skynjar að efnið er ætlað honum, en ekki hverjum sem er.


Klaviyo 1.1 (1)

Rétt skilaboð, á réttum tíma

Sjálfvirkni er einn helsti styrkleiki nútíma markpósts. Lausnir eins og Klaviyo safna gögnum úr vefkerfum, vefverslun og CRM-kerfum og kveikja sjálfkrafa á samskiptum þegar viðskiptavinur sýnir áhuga eða ásetning. 

Þannig eru skilaboð send út þegar þau skipta máli en ekki þegar einhver man eftir að senda þau.

Dæmi:

  • notandi skoðar vöru → fær hjálpleg skilaboð, ekki þrýsting um næstu skref
  • notandi yfirgefur körfu → fær áminningu sem er persónuleg, ekki fyrir hvern sem er
  • notandi kaupir vöru → fær viðeigandi eftirfylgni, ekki sölupóst daginn eftir

Gögnin auðvelda líka greiningu á árangri í rauntíma, til að sjá hvað virkar og hvaða hópar eru líklegastir til kaupa. Fyrirtæki sem nýta sjálfvirkni markvisst draga úr handavinnu, auka tekjur og styrkja tengsl við viðskiptavini án þess að þurfa stöðug að grípa handvirkt inn í.

Samspil við aðrar markaðsrásir

Markpóstur virkar best þegar hann er hluti af samræmdu „vistkerfi“ samskipta sem tengir saman vef- og applausnir, samfélagsmiðla og þjónustukerfi.

Þegar póstur er samhæfður þessum rásum - til dæmis með því að endurvekja áhuga sem kviknaði á Instagram eða minna á körfu sem gleymdist - verður markaðsstarfið miklu markvissara.

Lausnir eins og Klaviyo auðvelda samþættingu milli miðla, þar sem póstur, SMS og „push“-tilkynningar verða hluti af sama flæði. Notandinn upplifir miðlana sem eina samfellda heild, sama hvar hann er staddur.

Þetta er liður í heildrænni þjónustuupplifun (e. omnichannel experience) viðskiptavina, sem er gríðarlega mikilvæg í öllum viðskiptum í dag. 

Hvernig markpóstur virkar best í dag?

Markpóstur sem virkar í dag er hnitmiðaður, grípandi og tengdur aðstæðum viðtakandans. Tímasetning og samhengi skipta meira máli en hönnun eða lengd texta.

Flæði eins og „nýskráningar“, „yfirgefnar körfur“ og „endurvirkjun“ halda áfram að skila raunverulegum árangri þegar þau byggja á gögnum og greiningu.

Of mikil sjálfvirkni getur hins vegar dregið úr trausti. Skilaboð verða að hljóma eins og þau komi frá fólki, ekki vélum. Tæknin á að styðja við mannleg samskipti, ekki koma í staðinn fyrir þau.

Í Klaviyo er hægt að prófa efni, fínstilla flæði og mæla áhrif á einum stað. Þannig þróast samskiptin og viðskiptin á jákvæðan hátt með viðskiptavininum án þrýstings.

Lifandi samtal - ekki póstlisti

Markpóstur er að þróast sífellt meira í átt að samtali. Með gervigreind og persónusniðinni sjálfvirkni verður æ auðveldara að senda manneskjuleg skilaboð sem byggja á samhengi og sögu viðskiptasambandsins.

Markpóstur fer úr því að vera „tölvupóstur“ yfir í að vera samtal sem mótast með viðskiptasambandinu.

Með AI verkfærum í Klaviyo er hægt að :

  • velja efni sem er líklegast til að ná í gegn hjá hverjum viðtakanda,
  • stilla tímasetningar út frá líkindum á viðbrögðum,
  • fá innsýn í hvaða hópar eru líklegastir til að kaupa næst

Í stað eins pósts til þúsunda verða til þúsundir útgáfa af sama póstinum, sérsniðnar að aðstæðum og þörfum hvers og eins.

Framtíðin snýst því ekki um að hætta með markpóst, heldur að láta hann vinna betur með öðrum rásum. Þeir sem fókusa á gæði, manneskjulegan tón og stöðuga þróun ná árangri.


Klaviyo 2.2

Samantekt

Markpósturinn er ekki úreltur miðill. Hann er sveigjanlegt, gagnadrifið samtal sem skilar miklum árangri þegar rétt er að því staðið.

Fyrirtæki sem nýta Klaviyo og önnur sambærileg kerfi með skýrri stefnu og góðu efni sjá

  • sterkara samband við viðskiptavini,
  • meiri endurkaup,
  • og minni handavinnu

Markpósturinn er ekki bara sprelllifandi heldur þróast stöðugt áfram. Hann er ekki lengur áreiti úr einni átt heldur gagnvirkt samtal sem nýtir gögn, sjálfvirkni og innsæi.

 

Viltu gera markpóstinn þinn að virku samtali sem skilar árangri? Hafðu samband og við aðstoðum þig að setja upp flæði sem gerir alvöru gagn.

 

Kynntu þér stafræna markaðsþjónustu Vettvangs hér!

Spurt og svarað um markpóst í markaðsstarfi

Gerir markpóstur ennþá gagn í markaðsstarfi?

Já, ef hann er persónusniðinn, rétt tímasettur og byggður á gögnum. Tölvupóstur er enn besta fjárfesting í stafrænu markaðsstarfi. Fyrirtæki sem nýta sjálfvirkni og flæði, t.d. í Klaviyo, sjá meiri endurkaup og virkara samband við viðskiptavini.

Hvernig er hann öðruvísi í dag en fyrir 10 árum?

Fyrir 10 árum var þetta magnpóstur, ein útgáfa á alla. Í dag er þetta samtal sem byggir á hegðun og samhengi notenda.

Hvernig skilar sjálfvirkni í markpóstasendingum áranguri?

Sjálfvirkni tryggir að skilaboð berast þegar þau skipta máli, ekki þegar einhver man eftir þeim. Þetta skilar sterkari viðbrögðum og minni tímasóun. Kerfi eins og Klaviyo greina gögn í rauntíma og kveikja á póstsendingu eða SMS skeyti þegar notandi sýnir áhuga

Hvernig tengist markpóstur öðrum markaðsrásum?
Með Klaviyo er hægt að búa til samræmda upplifun yfir póst, SMS og „push“ tilkynningar. Allt vinnur saman í einni heildstæðri þjónustuupplifun.