Fara á efnissvæði
Vettvangur

Í stafrænu markaðsstarfi er nauðsynlegt að nýta samskipti viðskiptavina í gegnum ólíkar markaðsrásir, til dæmis vef og tölvupóst. Ýmsar tæknilausnir eru á markaði til að leysa það. 

Í þessu bloggi skoðum við þrjár frábærar markaðslausnir sem hver hefur nokkra sérhæfingu - Klaviyo, Click og Algolia.

Við rýnum í hvað þær gera vel, fyrir hverja þær henta best og hvar þær skarast.

Flókið landslag markaðstóla

Markaðstækni hefur þróast hratt á síðustu árum. Áður dugðu einföld kerfi til að senda út fréttabréf eða halda utan um tengiliði, en í dag er krafa um heildstæða, samhæfða mynd af viðskiptavinum og samskiptum við þá, þvert á sölurásir, vef- og applausnir, samfélagsmiðla og CRM kerfi. 

Þessu fylgir flækjustig þar sem gögn liggja föst í mismunandi kerfum, sjálfvirkni verður ómarkviss og mælingar óáreiðanlegar. Íslensk fyrirtæki eru ekkert undanskilin hér og lenda mörg á vegg þegar kemur að samþættingu gagna og forgangsröðun. 


Klaviyo

Klaviyo - sjálfvirkni í samskiptum og persónusniðin upplifun fyrir netverslanir

Klaviyo hefur á örfáum árum orðið eitt vinsælasta markpóstatól netverslana um allan heim. Lausnin sameinar sjálfvirkni, gagnagreiningu og persónusniðna upplifun í einu notendavænu kerfi, sem gerir fyrirtækjum kleift að tala beint til viðskiptavina á hárréttum tíma.

Með samþættingu við vinsæl kerfi eins og Shopify, WooCommerce og DK fær markaðsfólk aðgang að sölugögnum, hegðun á vef og samskiptasögu á einum stað og getur þannig hannað flæði sem auka sölu og minnka handavinnu.

Styrkleikar Klaviyo liggja bæði í einfaldleika og dýpt. Það tekur stutta stund að setja upp fyrstu flæðin, en möguleikarnir eru nánast endalausir eftir því sem reksturinn þróast.

Þeir sem nýta kerfið vel minnka handavinnu, auka endurkaup og hámarka þjónustuupplifun með persónusniðnum skilaboðum. 

Klaviyo hentar því sérstaklega vel fyrirtækjum sem vilja vaxa á netinu og leggja áherslu á mælanlegan árangur í markaðssamskiptum. Á það ekki við um þig?

Helstu kostir Klaviyo:

  • Auðvelt í uppsetningu og notkun, sérstaklega fyrir netverslanir
  • Öflug sjálfvirkni í tölvupósti, markpóstaflæði og tilkynningum ( push notifications)
  • Góð markhópa- og persónugreining sem byggir á raunverulegum gögnum
  • Samþætting við Shopify, WooCommerce, DK, Business Central og fleiri
  • Skýr mæling á árangri og tekjum sem má rekja til herferða

Hentar best fyrir:

  • Netverslanir og B2C-fyrirtæki sem vilja sjálfvirknivæða markpóst, einnig ýmis B2B rekstur
  • Fyrirtæki sem vilja mælanlegan árangur og hraða innleiðingu
  • Teymi sem vilja reka markaðsstarf án mikillar tækniaðstoðar

Kynntu þér Klaviyo þjónustu okkar hér


Click

Click – ný vídd ofan á Dynamics 365

Click er viðbót við Microsoft Dynamics sem gerir fyrirtækjum kleift að tengja betur saman markaðs- og sölustarf.

Click nýtir þau gögn og viðskipti sem fyrirtæki hafa nú þegar í Dynamics og bætir við markaðssjálfvirkni, markpóstaherferðum, formum og gagnagreiningu - án þess að þurfa að skipta um kerfi.

Þetta þýðir að sölu- og markaðsdeildir vinna út frá sömu upplýsingum og geta fylgst með áhrifum herferða á raunveruleg sölutækifæri.

Lausnin hentar sérstaklega vel fyrirtækjum í B2B umhverfi þar sem langt söluferli, samþætting ferla og ítarleg skjölun eru lykilatriði.

Fyrirtæki sem þegar hafa fjárfest í Dynamics fá mikið út úr því að virkja Click sem tengingu milli markaðsstarfs og CRM gagna.

Helstu kostir Click:

  • Byggir ofan á Microsoft Dynamics – gögn og ferlar á einum stað
  • Góð samþætting milli markaðs- og sölustarfs
  • Sterkt í B2B söluferlum, fínstilling flæða frá herferð til sölu
  • Tryggir samræmi, samþættingu gagna og öryggi innan Microsoft-umhverfisins
  • Hentar fyrirtækjum sem þurfa ítarlega ferlastjórnun og skjölun

Kynntu þér þjónustu okkar fyrir Click hér


Algolia

Algolia – nýttu leitina sem sölu- og markaðstól

Algolia er fyrst og fremst leitarvél - en þó mikið meira en það. Lausnin umbreytir venjulegri leit í kröftugt sölutæki með því að hjálpa notendum að finna það sem þeir leita að - og stundum það sem þeir vissu ekki að þeir vildu. 

Algolia notar háþróaða AI leitartækni, persónugreiningu og mælingar á hegðun notenda til að bæta notendaupplifun, stytta kaupferli og auka líkur á sölu.

Fyrir vefi þar sem vöruúrval er mikið er Algolia frábært tól til að tengja saman notendaupplifun og meiri tekjur. Algolia er gríðarhröð, leitarniðurstöður eru alltaf viðeigandi og uppsetning er sveigjanleg. 

Notendur sem finna strax það sem þeir leita að eru ánægðari - og líklegri til að kaupa meira.

Algolia er því ekki aðeins vinsæl hjá leiðandi netverslunum heldur einnig upplýsingaveitum og þjónustuvefjum sem vilja bjóða upp á bestu mögulegu notendaupplifun.

Helstu kostir Algolia:

  • Hraðari og nákvæmari leitarvél er varla til á markaði
  • Persónusniðnar niðurstöður sem byggja á hegðun notenda
  • Bætir notendaupplifun og virkjun (e. conversion rate) á vefnum
  • Auðvelt að samþætta við vefverslanir og CMS-kerfi
  • Veitir innsýn í leitarmynstur og hegðun notenda
  • Safnar gögnum um leitarorð sem skila ekki niðurstöðum

Henta best fyrir:

  • Netverslanir, vefi með mikið vöruframboð og efnismikla upplýsingavefi
  • Fyrirtæki sem vilja bæta notendaupplifun og afköst veflausna

Kynntu þér markaðsþjónustu okkar hér

Hvaða lausn nýtist þér best?

Klaviyo, ClickD og Algolia leysa ólíka þætti í markaðs- og sölukeðjunni.

Klaviyo leggur áherslu á sjálfvirkni og persónusniðna upplifun, Click á samþættingu og ferlastjórnun, og Algolia snýr að notendaupplifun og leit. 

Best er að greina vel hvar helstu tækifæri liggja: Er verið að eyða miklum tíma í handvirka póstsendingar, skortir yfirsýn yfir viðskiptasambönd, eða er upplifun notenda einfaldlega ekki að skila sér í tryggð og viðskiptum?

En auðvitað þarf ekkert að velja eitt umfram annað:

Fyrirtæki sem nýta Klaviyo fyrir sjálfvirkni geta sem best bætt við Algolia til að bæta upplifun notenda. Aðalatriðið er að byggja á því sem virkar og tryggja að gögn, ferlar og upplifun vinni saman sem ein heild en ekki sem aðskild kerfi.

Samantekt

Klaviyo, Click og Algolia eru þrjár ólíkar leiðir til að hámarka sjálfvirkni, persónugreiningu, gagnasamþættingu og notendaupplifun í stafrænu sölustarfi. Hver lausn hefur sína styrkleika, en árangur ræðst af því hvernig þær eru tengdar saman. 

Ný tækni er ekki markmið í sjálfu sér, heldur leið til að samræma aðgerðir og styrkja samskiptin við þá sem skipta mestu máli fyrir reksturinn.

Hvert er næsta skref?

Best er að gera stöðumat. Sumir eru að safna gögnum og samræma skráningu, aðrir hafa sett upp flæði og reyna að samþætta kerfi og mælingar. 

Stundum er besta leiðin - og jafnvel hin eina raunhæfa - að samþætta núverandi lausnir í stað þess að skipta þeim út.

Með því að tengja saman CRM kerfi, veflausn og markaðslausn má teikna upp heildstæða mynd af verðmæti viðskiptasambanda og mæla áhrif markaðsaðgerða á raunverulegan árangur. 

Þeir sem vanda grunnvinnu, byggja á gögnum sem þegar eru til staðar og bæta smám saman við meiri sjálfvirkni standa yfirleitt sterkast til lengri tíma. 

Við hjálpum fyrirtækjum að greina hvaða lausn nýtist þeim best - kannaðu málið:

Stafræn markaðsþjónusta hjá Vettvangi

Spurt og svarað um Klaviyo, Click og Algolia

Hvenær er Klaviyo besti kosturinn?
Þegar þú ert með netverslun (Shopify, WooCommerce, DK eða - Ekom lausn Vettvangs) og vilt mælanlega sjálfvirkni, endurkaup og persónusnið í póstum/SMS án mikillar tæknivinnu.

Hvenær skilar Algolia mestum ávinningi?
Efnismiklir vefir eða verslanir með mikið vöruframboð þar sem hraði, nákvæmni og persónusniðnar niðurstöður stytta leiðina að því sem leitað er að.

Geta lausnirnar unnið saman?
Já. Algengt er að nota Klaviyo + Algolia (sjálfvirkni + betri leit) eða Click + Algolia (Dynamics ferlar + UX/leit). Veldu það sem bætir veikustu hlekkina fyrst.

Hverjar eru helstu takmarkanir?
Klaviyo: Sterkust í netverslun; ekki CRM. Click: Bundið við Dynamics; þyngra í uppsetningu. Algolia: Ekki markaðskerfi; þarf að tengja við vef/CMS/verslun.