Stafræn umbreyting: Tækifæri og áskoranir 2025

Í þessum pósti skoðum við nokkrar helstu sveiflur og strauma í stafrænni umbreytingu fyrir 2025 sem snerta einkum vef- og stafrænar þjónustulausnir. Rauður þráður í stafrænni þróun næstu misseri er áhersla á hraða aðlögun að sviftingum í tækni og kröfum neytenda auk þess sem persónuvernd og öryggismál verða sífellt mikilvægari.

Hans Júlíus Þórðarson

Hans Júlíus Þórðarson

Markaðsmál og efnisþjónusta

julli@vettvangur.is

Stafræn umbreyting er ekki ný undir sólinni - hún tekur stöðugum breytingum og hefur mikil áhrif á hvernig við stundum rekstur og eigum samskipti við viðskiptavini. Þegar nýtt ár er að hefjast er ekki úr vegi að skoða hvaða áskoranir og tækifæri eru framundan fyrir framsýna aðila á stafrænni vegferð.

Í þessum pósti skoðum við nokkrar helstu sveiflur og strauma í stafrænni umbreytingu sem snerta einkum vef- og þjónustulausnir sem snúa að viðskiptavinum - og hvernig þú getur nýtt þá til að skapa þér samkeppnisforskot.

#1: Tæknimenning

Ein helsta kraftvél stafrænnar umbreytingar er fyrirtækjamenningin. Menning sem styður vel við stafræna umbreytingu fagnar breytingum, tilraunastarfsemi og nýsköpun.

Fyrirtæki sem búa yfir slíkum auði eiga auðveldara en önnur með að stafvæða ný ferli, vörur og þjónustu hratt og örugglega til að mæta kröfum á markaði.

Stafræn menning kallar á sterka forystu, skýra stefnu og skilvirkt samstarf þvert á deildir. Hún krefst líka fjárfestingar í réttri hæfni og þekkingu, sem og tólum og innviðum til að stafrænu sprotarnir fái að vaxa og blómstra. 

Hlúa þarf að tilraunastarfsemi og stöðugum lærdómi.

Fyrirtæki sem huga markvisst að stafvænni fyrirtækjamenningu eru skrefi á undan samkeppninni, búa við minni kostnað, bjóða meiri gæði, og uppskera tryggð viðskiptavina. 

Sífellt fleiri fyrirtæki eru að marka stefnu í þessa átt á með auknum þunga í stafvæðingu atvinnulífsins.

Menning sem styður við tæknibreytingar er lykilatriði

Fyrirtæki sem leggja áherslu á menningu sem einkennist af lærdómi og sveigjanleika eiga auðveldar með að innleiða stafræn umbreytingarverkefni.

#2: Skýjarekstur tekur flugið

Skýjarekstur verður sífellt umsvifameiri, enda hefur hann í för með sér marga ótvíræða kosti fyrir stafræna umbreytingu og þróun, ekki síst þróun stafrænna lausna.

Þróun lausna í skýjaumhverfi gerir forriturum kleift að nálgast tól, tækni og gagnasöfn hvar sem þeir eru staddir í heiminum, sem gerir hvers kyns samstarf þvert yfir hnöttinn einfaldara. 

Skýjaumhverfi er sérlega hentugt stafrænum sprotafyrirtækjum af nokkrum ástæðum:

  • Í fyrsta lagi býður skýið upp á vinnslugetu og þjónustustig sem hægt er að skala hratt upp og niður, eftir því sem reksturinn stækkar eða breytist.
  • Í öðru lagi eru skýjalausnir hagkvæmar þar sem aðeins er greitt fyrir afnot hverju sinni - ekki þarf að fjárfesta í dýrum vélbúnaði sem skiptir máli á fyrstu stigum. 
  • Í þriðja lagi bjóða bestu skýjalausnir eins og Azure mikið öryggi, enda stöðugt verið að uppfæra og tryggja umhverfi með bestu mögulegu aðferðum.

Áfram mætti telja.

Framtíðin í stafrænni þróun, bæði fyrir frumkvöðla og ráðsett fyrirtæki í stafrænu umbreytingarferli, liggur í gegnum skýið. Árið 2025 verður enn ein varðan á þeirri leið.

Lestu bloggið: Eimskip sameinar og nútímavæðir umhverfi sín í Azure

Hröð þróun kallar á skýjarekstur

Sífellt fleiri fyrirtæki og stofnanir taka stefnuna á skýjalausnir með gögn sín og stafræna innviði. Skýjalausnir eins og Azure bjóða allt milli himins og jarðar sem snýr að stafrænni vöruþróun og kerfisrekstri.

#3: Stafræn vistkerfi: API-væðingin

Stafræn vistkerfi eða samsettir tæknistakkar byggja á einingum eða smáþjónustum (e. microservices).

Þannig eru ólíkar lausnir tengdar saman með API samskiptalagi, en mynda saman heildstæða þjónustuupplifun gagnvart viðskiptavinum.

Kostir slíkrar nálgunar eru margir, til dæmis að þannig eru nýttar lausnir sem þegar eru í notkun og starfsmenn kunna á. 

Einnig er þannig hægt að setja saman tæknistakk sem hentar nákvæmlega aðstæðum hverju sinni í rekstrinum. Það eykur mikið sveigjanleika og viðbragðshraða þegar aðstæður breytast - sem gerist sífellt hraðar og oftar í stafrænu samkeppnisumhverfi.

Tæknistakkar sem settir eru saman úr ólíkum, sérhæfðum lausnum verða tvímælalaust meira áberandi árið 2025 - og um fyrirsjáanlega framtíð.

API væðingin

Til að takast á við síbreytilegar aðstæður í hröðu samkeppnisumhverfi er mikilvægt að veðja á sveigjanlegan, samsettan tæknistakk þar sem API tengilag eru notað til að tengja saman lausnir sem hægt er að skipta út eftir þörfum. Mynd frá Storyblok.com.

#4: Örari útgáfur með CI/CD

Stöðug samþætting og útgáfa (e. continuous integration / continuous Deployment, CI/CD) er hratt vaxandi nálgun í stafrænni þróun og á rætur að rekja til DevOps aðferðafræðinnar.

CI felur í sér sjálfvirka prófun á uppfærslum í kóðagrunni, sem gerð er jafn óðum. Breytingar eru keyrðar upp í framleiðsluumhverfi (e. staging/production system) eftir að sjálfvirkar prófanir hafa farið fram. 

CI sjálfvirknivæðir uppfærslur og viðbætur, en CD tekur skrefið lengra og færir þær í framleiðsluumhverfið fyrir nákvæmar prófanir.

Vettvangur notar CI/CD markvisst sem lið í DevOps verkferlum.

Vegna sífellt harðnandi samkeppni í stafrænu þjónustuframboði skiptir miklu máli að auka sveigjanleika, stytta þróunarferlið og bæta gæði lausnanna. CI/CD nálgun verður því áfram í sókn 2025 og um ókomin ár.

#5: API öryggismál sett á oddinn

Með breyttri kerfishögun þar sem sífellt fleiri veðja á flókna, samsetta tæknistakka ólíkra lausna (sbr. lið 3) verður öryggi tenginga æ krítískara. Öruggar API tengingar eru mikilvægar til að tryggja öryggi gagna og flæði þeirra.

Traustar API tengingar lágmarka hættu á gagnalekum, netárásum og alls kyns sviksemi sem tekur stöðugt á sig nýjar myndir.

Nauðsynlegt er að fara eftir bestu viðmiðum hverju sinni til að bæta öryggi API tenginga. Þau snúa að þáttum eins og

  • dulkóðun
  • auðkenningu
  • stillingum á heimildum notenda
  • eftirliti
  • atvikaskráningu og
  • reglulegum úttektum 

Öryggi í API tengingum fæst best með því að nóta tól og tækniumhverfi sem bjóða traustar API gáttir, eldveggi og auðkennislausnir.

Á Vettvangi treystum við á þróunarumhverfi Azure sem býður hámarksöryggi með tilliti til gagnaöryggis. Þar hafa sérfræðingar Well Advised reynst okkur haukar í horni.

API öryggið sett á oddinn

Eftir þvi sem skýjareksturinn eykst sem og umfang samsettra tæknistakka sem vinna saman í gegnum API, fær öryggi tenginganna sífellt meira vægi.

#6: „Gagnagapið“ minnkað

Gagnagapið (e. data divide) er áskorun sem mörg fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir á stafrænni vegferð. Nánar tiltekið snýr áskorunin að því að safna, greina og hagnýta gögn til að fá betri innsýn í reksturinn, taka betri ákvarðanir og sjálfvirknivæða ferla. 

Þróuðustu tæknilausnir í dag - ekki síst sjálfvirkar lausnir sem byggja á gervigreind - nýta gögn sem sitt kjarnafóður . Þetta á einnig við um ýmsar stafrænar þjónustulausnir þar sem persónusniðin upplifun er mantran.

Lykill að því að bæta gagnagæðin - og gera þannig verðmæti úr þeim - er að nýta gagnalausnir og tól sem tengja saman og flokka gagnasöfn og -strauma. En verkefnið snýr líka að ferlum, þekkingu og menningu (sbr. lið #1 að ofan).

Þetta er vegferð sem flest fyrirtæki eiga fyrir höndum áður en þau geta tekið einhver skref í snjallvæðingunni framundan - sem tekur við af stafvæðingunni.

Mörg fyrirtæki munu á nýju ári hella sér í stefnumótun og vinnu við að greina og skipuleggja gögn sín, enda mikil verðmæti í húfi.

#7: Sjálfvirkni og gervigreind á sterum

Sjálfvirkni í stafrænum lausnum verður sífellt mikilvægari í stafrænni umbreytingu.

Sjálfvirknin snýr að því að leysa mannshöndina af hólmi hvar sem hægt er, auka skilvirkni ferla með hraðari vinnslu hvers konar og bæta þjónustu við endanotendur. 

Sjálfvirkni hefur þegar rutt sér rúms í vefþróuninni, ekki síst í prófunum og útgáfuferlinu (sjá umræðu um CI/CD að ofan), en einnig í öryggiseftirliti og sjálfvirkum stillingum á afkastagetu.

Einnig sjáum við sjálfvirkni í lausnunum sjálfum, til dæmis í formi persónusniðinnar vefupplifunar, meðmælakerfum og snjallra spjallmenna sem létta álag á þjónustuverum - eða gera þau óþörf.

Sjálfvirknin er allt umlykjandi í stafrænni þróun og fær sterabúst á nýju ári með aðstoð spunagreindar og annarra AI tóla.

Gervigreindin er komin til að vera

Stafvæðingin mikla opnar veginn fyrir snjallvæðingu sem nýtir gervigreind til að sjálfvirknivæða alls kyns verkferla sem áður þurfti mannshöndina við. Þessi þróun er komin á fulla ferð og tekur stökkið 2024.

#8: Gagnasöfnun og persónuvernd

Umfangsmikil gagnasöfnun er rauður þráður í flestum viðskiptaferlum í stafrænum heimi. Gögn veita innsýn sem gerir fyrirtækjum kleift að taka upplýstar ákvarðanir, sjálfvirknivæða ferla, og veita betri þjónustu.

Þessari þróun fylgir stóraukin krafa um aukið öryggi gagna og persónuvernd.

Fyrirtæki og stofnanir þurfa að vanda mjög til verka við söfnun, vinnslu og geymslu gagna.

Sífellt meiri áhersla verður lögð á hanna trausta verkferla til að fyrirbyggja óviljandi brot á persónuvernd sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir viðskiptavini  - og ekki síður fyrirtækin sjálf í formi trúnaðarbrests og fjársekta.

Árið 2025 munu fyrirtæki leggja mikla áherslu á að mæta áskorunum á þessu sviði, ekki síst:

  • Samþykki notenda - tryggja að gagnasöfnun sé framkvæmd með skýru og upplýstu samþykki notenda, ekki síst með tilliti til reglugerða eins og GDPR.
  • Gagnaleynd og gagnsæi - notendur krefjast æ meira gagnsæis um hvaða gagna er safnað um þá, hvernig gögnin eru notuð og hverjir hafa aðgang að þeim.
  • Vörn gegn gagnalekum - öryggisbrestir, eins og gagnalekar og netárásir, verða sífellt algengari og geta haft víðtæk áhrif. Það kallar á öfluga dulkóðun, strangar aðgangsstýringar og reglulegar öryggisúttektir.

Til að halda í við auknar kröfur um persónuvernd og öryggi munu sífellt fleiri fyrirtæki innleiða tæknilausnir sem byggja á gervigreind.

Þessar lausnir geta greint frávik í rauntíma, sjálfvirknivætt viðbrögð við öryggisatvikum og aðstoðað við að fara eftir ströngum persónuverndarreglum.

Fyrirtæki sem leggja ríka áherslu á persónuvernd og varkárni í gagnasöfnun uppskera meira traust og forskot á markaði.

Lokaorð

Í þessari grein höfum við fjallað um helstu strauma í stafrænni umbreytingu fyrir árið 2025 - og væntanlega áfram næstu misseri.  Þeir eru vissulega fleiri.

Stafræn umbreyting og þróun er síbreytilegt en óstöðvandi ferli sem krefst stöðugrar aðlögunar og nýsköpunar. Það er ekki um neina endastöð að ræða. 

Veflausnir og aðrar lausnir sem snúa að stafrænni þjónustu leiða vagninn þegar stafræn vegferð er annars vegar.

Það er mikilvægt að huga sérstaklega að óvissri framtíðarþróun þar, bæði hvað varðar tækni og kröfur notenda, en þar er sveigjanleiki og viðbragðshraði lykilatriði. 

Vonandi kviknuðu einhver ljós við lesturinn - við á Vettvangi erum ávallt boðin og búin í spjall til að ræða um stafræna þróun - þína eða almennt!

Elmar Gunnarsson

Viðskipti og ráðgjöf

Viltu kíkja í spjall?

Orð eru til alls fyrst. Kíktu til okkar í heimsókn og segðu okkur þína sögu. Við tökum vel á móti þér, frítt og skuldbindingalaust.

Sláðu á þráðinn

415 0018

Eða skelltu á mig pósti

Fyrirtaks fólk í fyrirtaks fyrirtæki

Vettvangurinn er skipaður einvala liði fólks og furðufugla, sem er gaman og ánægjulegt að vinna með.

  • Framúrskarandi fyrirtæki 2022-2023
  • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2021-2023
  • Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2023
  • Velgjörðafyrirtækja SOS Barnaþorpa
  • Fyrirtækja ársins 2020

Viðskiptavinur